Flogaveik Helga Sigurðardóttir fékk köst af samheitalyfi.
Flogaveik Helga Sigurðardóttir fékk köst af samheitalyfi. — Morgunblaðið/Kristinn
„Flogaáran hékk yfir mér og stoppaði mig í að gera mjög margt, til dæmis í að keyra bíl.
„Flogaáran hékk yfir mér og stoppaði mig í að gera mjög margt, til dæmis í að keyra bíl. Svo gerist það að ég fæ mörg slæm flogaköst í einu og er flutt með sjúkrabíl á spítala,“ segir Helga Sigurðardóttir sem greindist með flogaveiki árið 2010. Hún tengir flogaköst sem hún fékk títt á tímabili við samheitalyf sem hún tók inn. Eftir þessi slæmu flogaköst ákveður hún að kaupa frumlyfið Keppra frekar en samheitalyfið sem hún var á áður og henni líður strax betur. Fyrir fimmtíu daga skammt af frumlyfinu greiddi hún 15.000 kr. en samheitalyfið var niðurgreitt að fullu af Sjúkratryggingum. 6