Frá Snorra Ásmundssyni: "Það er frábært fólk sem býður sig fram í forsetakosningunum og ég myndi ráða þau öll í vinnu ef ég gæti, en það er þó aðeins einn af þeim sem ég myndi ráða (áfram) í starf forseta Íslands. Það er herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti vor."

Það er frábært fólk sem býður sig fram í forsetakosningunum og ég myndi ráða þau öll í vinnu ef ég gæti, en það er þó aðeins einn af þeim sem ég myndi ráða (áfram) í starf forseta Íslands. Það er herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti vor. Þrátt fyrir að hann hafi ekki alltaf verið í uppáhaldi hjá mér þá er ekki hægt að efast um hæfni hans og greind. Honum er fyrirgefið eins og þjóðinni „allri“ að hafa verið ginnkeyptur fyrir fjármálaútrásinni.

Ég hef boðið mig fram á móti Ólafi og leikið hann í leikuppsetningu og ég er þess fullviss eftir þá reynslu og að hafa fylgst vel með störfum hans í gegnum tíðina að hann er maður sem ég vil að gegni hlutverki forseta Íslands þar til ég verð tilbúinn að gegna slíkum störfum sjálfur.

Herra Ólafur Ragnar Grímsson er ekki fullkominn maður og það er enginn, en hann hefur verið forseti vor á merkilegum umbrotatímum og staðið það af sér með sóma.

Áfram Ólafur Ragnar Grímsson í 4 ár í viðbót og takk fyrir góð störf fyrir þjóðina.

SNORRI ÁSMUNDSSON,

listamaður og fyrrv. forsetaframbjóðandi.

Frá Snorra Ásmundssyni

Höf.: Snorra Ásmundssyni