Kristian Thulesen
Kristian Thulesen
Nýr formaður danska þjóðarflokksins vill herða reglur um innflytjendur og loka flóttamannamiðstöðvum. Kristian Thulesen Dahl vill einnig að svínakjöt verði aftur sett á matseðil opinberra stofnana.

Nýr formaður danska þjóðarflokksins vill herða reglur um innflytjendur og loka flóttamannamiðstöðvum. Kristian Thulesen Dahl vill einnig að svínakjöt verði aftur sett á matseðil opinberra stofnana.

„Ríkisstjórn Helle Thorning-Schmidt hefur á sínu fyrsta starfsári valdið gríðarlegu tjóni í málefnum útlendinga,“ sagði Thulesen Dahl í sinni fyrstu formannsræðu. Hann hét því að kæmist Danski þjóðarflokkurinn til valda eftir næstu kosningar yrðu gagngerar breytingar gerðar á þessu sviði.

„Við hefðum átt að stöðva straum innflytjenda frá löndum utan hins vestræna heims,“ sagði Dahl. Við eigum að senda fólk í auknum mæli til síns heimalands, þar sem það hefur það miklu betra en hér,“ bætti hann við.