Leikstjóri Baltasar Kormákur.
Leikstjóri Baltasar Kormákur.
Stórt viðtal birtist við leikarann og leikstjórann Baltasar Kormák í bandaríska dagblaðinu Los Angeles Times um helgina. Þar er rætt við Baltasar um nýjustu kvikmynd hans Djúpið.

Stórt viðtal birtist við leikarann og leikstjórann Baltasar Kormák í bandaríska dagblaðinu Los Angeles Times um helgina. Þar er rætt við Baltasar um nýjustu kvikmynd hans Djúpið. Viðtalið tók Steven Zeitchik á frumsýningu kvikmyndarinnar á kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrr í mánuðinum. Í viðtalinu segist Baltasar meðal annars telja myndina geta höfðað til áhorfenda um heim allan.

„Kvikmyndin er um það hvað lætur einhvern lifa af þegar það er í raun engin ástæða fyrir því að viðkomandi ætti að takast það. Ég get ekki ímyndað mér neitt mannlegra en það,“ segir Baltasar.