Brúnar Heldur betur eru þær girnilegar þessar brúnu kökur hennar Svövu.
Brúnar Heldur betur eru þær girnilegar þessar brúnu kökur hennar Svövu.
Hún Svava er ung kona sem heldur úti skemmtilegu og einkar fögru matarbloggi undir slóðinni www.ljufmeti.com.
Hún Svava er ung kona sem heldur úti skemmtilegu og einkar fögru matarbloggi undir slóðinni www.ljufmeti.com. Hún segir bakstur og eldamennsku vera sitt helsta áhugamál og á blogginu heldur hún utan um sínar gömlu uppskriftir, prófar nýjar og segir frá og sýnir árangurinn. Hún sækir hugmyndir meðal annars í annarra matarblogg og býður fólki að hafa samband í gegnum netfang sitt. Svava tekur mjög fallegar myndir af því sem hún eldar eða bakar og skiptir það ekki litlu máli þegar matarblogg er annars vegar, að þau séu fyrir augað. Enda stendur á forsíðunni hennar: Ljúfmeti og lekkerheit. Uppskriftirnar eru aðgengilegar og bloggið persónulegt, ekki aðeins um mat heldur líka um fjölskylduna og hversdagslífið. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á blogginu hennar Svövu.