Af fjalli Fé af Þeistareykjum á leið í Hraunsrétt á laugardag. Ryðja þurfti fénu braut af afrétti vegna fannfergis.
Af fjalli Fé af Þeistareykjum á leið í Hraunsrétt á laugardag. Ryðja þurfti fénu braut af afrétti vegna fannfergis. — Morgunblaðið/Atli Vigfússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við vorum að finna hóp í skúta, flestar dauðar,“ sagði Haraldur Helgason, bóndi á Grænavatni við Mývatn síðdegis í gær. Hann var ásamt fleirum við leit að fé í Sellöndum sunnan við Mývatn.

Baksvið Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

„Við vorum að finna hóp í skúta, flestar dauðar,“ sagði Haraldur Helgason, bóndi á Grænavatni við Mývatn síðdegis í gær. Hann var ásamt fleirum við leit að fé í Sellöndum sunnan við Mývatn. „Það voru allavega 15 dauðar og sex eða sjö lifandi.“ Haraldur sagði tvísýnt um líf einnar ærinnar. Hinar virtust vera í lagi. Allt var þetta fullorðið. Kindurnar höfðu leitað vars í skúta undir kletti, síðan hafði fennt yfir og flestar kindurnar kafnað. Hundar þefuðu uppi kindurnar undir snjónum.

Í gær var verið að leita að fullorðnum ám í Sellöndum sem hafði verið sleppt eftir fyrstu göngur. Svæðið var smalað á laugardag og vantaði um 150 fjár eftir það. Í gær var verið að svipast um eftir fénu. Haraldur sagði veðrið sæmilegt, smá hríðarmugga af og til en ekki sérstakt skyggni.

Svolítið að skríða upp

„Við fundum lítið og skyggnið var ekkert sérstakt, gekk á með dimmum éljum,“ sagði Birgir V. Hauksson, bóndi á Hellu við Mývatn. Hann var ásamt fleirum að leita að fé við Gæsafjöll norðan við Mývatn í gær. Þeir fundu átta kindur og fluttu þær til byggða. Birgir sagði áherslu lagða á að finna fé sem væri á ferli. Þeir hafa fundið bæli í fönninni sem kindur hafa skriðið úr. „Sem betur fer er það svolítið að skríða upp. En það er klárlega eitthvað undir fönn,“ sagði Birgir. Hann sagði að kindur gætu lifað lengi undir fönn og tæki upp gæti féð skriðið úr fönninni. Í svonefndum Dölum er skógur og eru kindur að spretta undan hríslunum þegar þær rétta sig við.

Ekki var búið að smala svæðið og áttu fyrstu göngur að vera á laugardag. Birgir sagði erfitt að áætla hvað margt fé hefði verið á svæðinu þegar óveðrið brast á. Búið er að fækka mikið á stærsta búinu sem venjulega átti þarna fé. Hann taldi að hann hefði átt að eiga þarna um 200 fjár en óvíst hve mikið hefði gengið þarna af aðkomufé.

Birgir sagði búið að skanna allt svæðið og hefur töluverður mannskapur farið daglega þar um síðan á miðvikudag og flutt rúmlega 200 fjár til byggða. Búið var að finna tvær dauðar ær. Birgir kvaðst vona að meira en helmingurinn af fé á svæðinu væri kominn niður. Hann kvaðst vona að ekki vantaði nema um 20 ær en óvíst hvað vantaði mikið af lömbum.

Bæjarbúar brugðust vel við

Liðsmenn úr Björgunarsveitinni Stefáni í Mývatnssveit aðstoðuðu bændur við leitir að fé bæði sunnan og norðan við Mývatn í gær. Þeir notuðu snjóbíl til leitar í Sellöndum og jeppa með stórri kerru til leitar við Gæsafjöll. Ekki viðraði sérstaklega vel til leitar í gær, að sögn Kristjáns Steingrímssonar, formanns Björgunarsveitarinnar Stefáns.

„Bæjarbúar brugðust vel við þótt þetta kæmi seint,“ sagði Guðbergur Ægisson, formaður Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík. Þeir auglýstu á laugardag eftir fólki til fjárleitar í gær og fóru 18 manns. Leitarsvæðið var efst í Geldingadal, sem liggur niður frá Höskuldsvatni á Reykjaheiði og í átt að bænum Skarðaborg.

Guðbergur sagði að bændur og aðrir heimamenn hefðu verið við leit í Geldingadal á laugardag og náð um 70 kindum upp úr sköflum á svæðinu. Ummerki sáust um allar þær kindur. Bændurnir óskuðu eftir aðstoð við að fínkemba alla skafla með snjóflóðaleitarstöngum.

Snjókoma var á leitarsvæðinu í gær í Geldingadal. Guðbergur sagði að engin kind hefði fundist í sköflunum á leitarsvæðinu, hins vegar fannst ein kind í skafli í hlíðinni gegnt leitarsvæðinu. Leitarmennirnir gengu þar um en fundu ekki fleiri kindur.

HÓPUR RÁÐUNEYTISSTJÓRA VIRKJAÐUR

Óveðrið olli bótaskyldu tjóni

„Það liggur held ég alveg fyrir að þarna hefur orðið bótaskylt tjón samkvæmt reglum bjargráðasjóðs,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra um afleiðingar óveðursins á Norðurlandi. Umfangið verður ekki ljóst fyrr en síðar, ekki síst tjón bænda. Stjórnvöld vinna áfram að öflun upplýsinga um umfang tjónsins.

„Ég geri ráð fyrir að við förum með þetta í svipaðan farveg og fyrri náttúruhamfarir, að það verði virkjaður ráðuneytisstjórahópur þannig að ráðuneytin sem að þessu koma vinni saman. Það hefur gefið mjög góða raun í fyrri náttúruhamförum.“