„Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk er eftirsóttir starfskraftar. Læknar koma seinna heim úr sérnámi en áður var vegna kjara og margir okkar hafa farið úr landi,“ segir Ómar Sigurvin, formaður Félags almennra lækna.

„Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk er eftirsóttir starfskraftar. Læknar koma seinna heim úr sérnámi en áður var vegna kjara og margir okkar hafa farið úr landi,“ segir Ómar Sigurvin, formaður Félags almennra lækna. Félaginu er misboðið vegna þeirrar ákvörðunar velferðarráðherra að hækka laun forstjóra Landspítalans.

Í félaginu eru um 200 læknar, sem eru með lækningaleyfi en eru ekki með sérfræðiréttindi. Þetta eru 15-20% af öllum læknum á landinu. Félagið hélt aðalfund fyrir helgi og sendi frá sér ályktun þar sem því er fagnað að velferðarráðherra hafi áttað sig á samkeppnisstöðu íslenskra heilbrigðisstétta og launi vel unnin störf.

Um leið segja félagsmenn sér misboðið vegna þess að gengið sé fram hjá öllu því starfsfólki sem hefur tekist á við aukið álag og skert kjör.

„Það er forkastanlegt að hækka einungis laun eins manns,“ segir í yfirlýsingunni. Spurður hvort þar sé átt við hækkun á launum forstjóra Landspítalans segir Ómar svo vera.

Mikið álag á læknum

Hann segir mikið álag vera á læknum. „Margar heilbrigðisstofnanir eru undirmannaðar og mönnunarþörf er illa skilgreind. Að auki fá læknar ekki nauðsynlegan aðlögunartíma þegar þeir hefja störf á sjúkahúsunum. Það getur hreinlega ógnað öryggi sjúklinga.“