Mörður Árnason, framsögumaður meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir áliti um rammaáætlunina, segist stefna að því að álitið verði sent út úr nefndinni á mánudag. Drög að álitinu upp á 40 síður séu tilbúin. Hann segir meirihluta vera í nefndinni fyrir óbreyttri þingsályktunartillögu umhverfisráðherra, engar breytingartillögur séu gerðar. Jafnframt telur Mörður að meirihluti sé fyrir málinu á Alþingi. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis fundar um málið í dag, þar sem einn gestur kemur fyrir nefndina. Atvinnuveganefnd þingsins er einnig á fundi í dag, þar sem rammaáætlunin er á dagskrá. Nefndin átti að skila sinni umsögn um málið 1. nóvember sl. og Mörður segir sína nefnd skila álitinu á mánudag óháð því hvort atvinnuveganefnd verði búin að skila af sér.
„Ef umsögnin kemur þá verður hún tekin til umfjöllunar,“ segir Mörður. bjb@mbl.is