Fyrrverandi starfsfólk Iceland Express heldur markað að Ármúla 7 dagana 15., 16. og 17. nóvember. Kallast hann Bjútý frí markaðurinn og jafnframt hefur verið opnað kaffihúsið Iceland Expressó.

Fyrrverandi starfsfólk Iceland Express heldur markað að Ármúla 7 dagana 15., 16. og 17. nóvember. Kallast hann Bjútý frí markaðurinn og jafnframt hefur verið opnað kaffihúsið Iceland Expressó.

Í tilkynningu frá starfsfólkinu segir að á markaðinum kenni margra grasa. „Þarna verður til dæmis á boðstólum notaður fullorðins- og barnafatnaður sem oftar en ekki hefur verið keyptur á erlendri grundu, undurfagrir aðventukransar, ýmiss konar handverk, glys, glimmer og tóm hamingja,“ segir í tilkynningunni.

Fyrrverandi starfsfólk IE verður á staðnum, þeirra á meðal flugliðarnir fyrrverandi Edda Björgvins, Heiðar Jónsson og Helga Braga.

Opið verður alla dagana frá kl. 13-18.