Öryggissjónarmið. V-Allir
Norður | |
♠753 | |
♥986 | |
♦Á32 | |
♣DG87 |
Vestur | Austur |
♠-- | ♠D82 |
♥G752 | ♥D103 |
♦KD1098 | ♦G754 |
♣ÁK109 | ♣542 |
Suður | |
♠ÁKG10964 | |
♥ÁK4 | |
♦6 | |
♣63 |
Vestur opnar á 1♦ – pass og pass til suðurs. Dobl eða 4♠?
Kemur út á eitt, í sjálfu sér, en doblið hefur það með sér að auðveldara verður að ná slemmu ef norður á gott viðbragð móti. En hér er enginn fótur fyrir 6♠ og vestur kemur út með ♣Á gegn fjórum. Skiptir svo yfir í ♦K. Hvernig á að spila?
Ef trompið fellur 2-1 er létt verk að sækja 11 slagi með því að taka tvo efstu í spaða og fría slag á lauf. Trompsjöan í borði verður innkoma á frílauf. Þannig væri rétt að spila í tvímenningi, enda líkur á 2-1 legu 78%. Í sveitakeppni ber hins vegar að setja öryggið á oddinn og nota innkomuna á ♦Á til að svína í trompi! Ef svíningin bregst fást tíu slagir, eftir sem áður, með því að fría laufslag.