Björgvin Karl Gunnarsson er tekinn við kvennaliði KR í knattspyrnu á nýjan leik. Frá þessu var greint fá vefsíðu KR-ingar í gær en Björgvin hefur stýrt æfingum liðsins undanfarnar vikur.
Björgvin Karl þekkir vel til hjá KR en hann stýrði kvennaliðinu í fyrrasumar. Áður hefur hann þjálfað meistaraflokk kvenna hjá Hetti á Egilsstöðum. Undir stjórn Björgvins Karls endaði KR í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar og slapp við fall á markatölu.
KR-konur, sem sex sinnum hafa fagnað Íslandsmeistaratitlinum, féllu svo úr Pepsi-deildinni í sumar undir stjórn Jóns Þórs Brandssonar og leika því í 1. deildinni að ári. tomas@mbl.is