Lagadeild Háskólans í Reykjavík í samstarfi við lagadeildir Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst, stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ boðar til fundar föstudaginn 16. nóvember kl.

Lagadeild Háskólans í Reykjavík í samstarfi við lagadeildir Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst, stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ boðar til fundar föstudaginn 16. nóvember kl. 12:15-13:30 í dómsal Háskólans í Reykjavík (M-103).

Nýlega skilaði sérfræðinganefnd niðurstöðum sínum um tillögur stjórnlagaráðs. Á fundinum verður vinna, niðurstöður og ábendingar sérfræðinganna kynntar og rætt hvað skuli gera næst í stjórnarskrármálinu.

Erindi flytja Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, dr. Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild HÍ, Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild HÍ, Kristrún Heimisdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, og Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst.

Loks verða almennar umræður.