Húnar báru í gærkvöld sigurorð af Skautafélagi Reykjavíkur á Íslandsmótinu í íshokkí karla með níu mörkum gegn engu.

Húnar báru í gærkvöld sigurorð af Skautafélagi Reykjavíkur á Íslandsmótinu í íshokkí karla með níu mörkum gegn engu. Þetta var fimmti leikur Húnanna á tímabilinu en liðið hefur unnið þrjá leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum leik en þetta er töluvert betri árangur en liðið náði á síðasta tímabili.

SR-ingar á hinn bóginn hafa átt erfitt uppdráttar þetta keppnistímabilið en liðið missti marga leikmenn eftir síðasta keppnistímabil.

Daniel Kolar skoraði fjögur af mörkum Húna og átti auk þess eina stoðsendingu. Hjörtur Björnsson var með tvö mörk og Brynjar Bergmann, Edmunds Induss og Óli Þór Gunnarsson skoruðu eitt mark hver. sport@mbl.is