Góð byrjun Skipverji á Stafnesinu KE við einn af fyrstu túnfiskunum sem fengust á flotlínuna í haust.
Góð byrjun Skipverji á Stafnesinu KE við einn af fyrstu túnfiskunum sem fengust á flotlínuna í haust.
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stafnesið KE fékk 16 túnfiska í októbermánuði djúpt suður af Reykjanesi, en tilraunum til frekari veiða hefur nú verið hætt. Oddur Sæmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður, segir að þeir hafi einfaldlega fallið á tíma.

Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Stafnesið KE fékk 16 túnfiska í októbermánuði djúpt suður af Reykjanesi, en tilraunum til frekari veiða hefur nú verið hætt. Oddur Sæmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður, segir að þeir hafi einfaldlega fallið á tíma. „ Síðustu vikur hafa verið stöðugar brælur og stórviðri. Hitaskilin, þar sem helst er von um að veiða túnfisk, straujuðu langt, langt suður í höf,“ segir Oddur.

Hann segir að talsvert tap hafi orðið á þessari tilraun, en hefur þó áhuga á að reyna aftur næsta haust fái hann til þess leyfi. „Við erum reynslunni ríkari og myndum byrja fyrr en við gerðum í haust. Við höfum aflað okkur reynslu í veiðum og meðferð fisksins og komið okkur upp búnaði.“

Japönsk túnfiskveiðiskip hraðfrysta fiskinn yfirleitt í um 60 gráður. Um borð í Stafnesinu var hann kældur niður í núll gráður um leið og hann kom um borð og hitanum haldið stöðugum. Aldrei var dregið oftar en þrisvar sinnum í veiðiferð til að tryggja gæði svo að fiskurinn kæmist sem ferskastur á markað eftir langt flug til Japans.

Gæði í fyrstu sendingunni voru mjög mikil við komuna til Japans, en misjafnari í þeim tólf fiskum sem voru í seinni sendingunni, að sögn Odds. Hann segir að flutningskostnaðurinn hafi verið mikill, en það hafi verið vitað fyrirfram.

„Verðið sem við fengum á markaði í Japan var ekkert nálægt þeim sprengiháu upphæðum sem við vorum búnir að heyra um. Það er greinilegt að slíkar tölur sjást ekki á hverjum degi á þessum mörkuðum,“ segir Oddur.