Barátta Úr síðustu Twilight-myndinni , Twilight Breaking Dawn Part 2.
Barátta Úr síðustu Twilight-myndinni , Twilight Breaking Dawn Part 2.
Snabba Cash 2 Glæpamaðurinn Johan Westlund afplánar fangelsisdóm og hyggst komast aftur á beinu brautina í lífinu. Hann skrifar forrit sem hann ætlar sér að selja og fær leyfi til þess að bregða sér út fyrir múra fangelsisins til að ganga frá samningi.
Snabba Cash 2

Glæpamaðurinn Johan Westlund afplánar fangelsisdóm og hyggst komast aftur á beinu brautina í lífinu. Hann skrifar forrit sem hann ætlar sér að selja og fær leyfi til þess að bregða sér út fyrir múra fangelsisins til að ganga frá samningi. Við það nýtur hann aðstoðar samfanga síns sem er ekki allur þar sem hann er séður og þarf Johan að standast þá freistingu að snúa ekki aftur á glæpabrautina. Johan fréttir af því að glæpamaður sem hann kannast við sitji á fúlgum fjár og freistar það hans að koma yfir þær höndum. Leikstjóri er Babak Najafi og í aðalhlutverkum Joel Kinnaman, Fares Fares og Matias Varela. Filmfenix: 4/5

Moviezine: 4/5

Twilight Breaking Dawn Part 2

Fimmta og síðasta kvikmyndin í Twilight-syrpunni. Segir sem fyrr af blóðsugum og varúlfum. Bella Swan er nú orðin vampíra og hefur eignast stúlkubarn með heitmanni sínum, vampírunni Edward Cullen. Ekki eru allir sáttir við afkvæmið og Bella og Edward komast að því að þau eru öll í bráðri lífshættu. Þau eru borin röngum sökum og þurfa að verjast. Til þess leita þau liðsstyrks hjá sínum líkum og upphefst bardagi mikill. Leikstjóri er Bill Condon og í aðalhlutverkum Kristen Stewart, Robert Pattinson og Taylor Lautner.

Rotten Tomatoes: 82%

Draumurinn um veginn 5. hluti: Að heiman heim

Síðasti hluti myndaflokks Erlends Sveinssonar um pílagrímsgöngu rithöfundarins Thors heitins Vilhjálmssonar eftir hinum forna Jakobsvegi á Spáni. Thor er kominn til heilsu á ný eftir veikindi sem hrjáðu hann í 4. hlutanum og getur nú fylgt eftir ásetningi sínum um að ganga til grafar Jakobs postula í dómkirkjunni í Santiago de Compostela.