Ingibjörg Jóhannsdóttir fæddist í Litladal í Tungusveit, Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði 30. september 1916. Hún lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri 2. nóvember 2012.
Foreldrar hennar voru Hólmfríður Guðrún Helgadóttir, húsfreyja í Litladal, f. 19. júní 1877 á Hálsi í Fnjóskadal, d. janúar 1953 og Jóhann Hinrik Jónasson, bóndi í Litladal, f. 27. desember 1872 á Stekkjarflötum í Austurdal, d. 7. september 1952. Bræður Ingibjargar voru Vilhelm Jóhann, f. 22. júlí 1902, d. 8. desember 1980, Jónas Guðmann, f. 24. mars 1906, d. 1924, hálfbróðir Hjálmar Hinrik, f. 6. ágúst 1920, d. 28. maí 1983. Tveir drengir dóu ungir, annar 6 vikna og hinn yngri, hétu báðir Jónas. Ingibjörg giftist 1941 Guðmundi Kristjáni Sigurgeirssyni, f. 30. mars 1918, d. 28. desember 1996. Foreldrar hans voru Anna Guðrún Guðmundsdóttir, húsfreyja á Arnstapa, f. 22. ágúst 1897 á Kúfustöðum í Svartárdal, d. 17. desember 1989 og Sigurgeir Bjarni Jóhannsson, bóndi á Arnstapa, f. í Landamótsseli, Ljósavatnshreppi, 20. október 1891, d. 8. júlí 1970. Ingibjörg og Guðmundur eignuðust fimm börn: 1) Geir, f. 19. ágúst 1942, eiginkona Heiðbjört Eiríksdóttir, f. 18. október 1945. Þeirra börn: Guðmundur Ingi, f. 1965, Klara, f. 1968 og Auðbjörg, f. 1972. 2) Hólmfríður Guðrún, f. 15. október 1946, eiginmaður Jón Eggertsson, f. 29. september 1945. Þeirra synir Eggert, f. 1969, Ingimundur, f. 1979 og Aðalgeir, f. 1982. 3) Hjalti, f. 24. október 1947, d. 7. júní 2012, fyrri eiginkona hans var Sólveig Sigtryggsdóttir, f. 3. ágúst 1950, d. 8. október 1982. Þeirra dætur: Heiður, f. 1973 og Gígja f. 1977. Seinni eiginkona Hjalta, Guðný Ósk Agnarsdóttir, f. 30. nóvember 1944, hennar börn: Agnar Kári Sævarsson, f. 28. júlí 1961 og Sigurlaug Sævarsdóttir, f. 18. mars 1969. 4) Leifur, f. 12. nóvember 1952, eiginkona Þórdís Sigurbjörg Karlsdóttir, f. 8. janúar 1957. Þeirra börn: Laufey, f. 1975, Karl Óttar, f. 1978 og Ingibjörg, f. 1980. 5) Anna Sigríður, f. 28. ágúst 1959, eiginmaður Haukur Geir Guðnason, f. 3. apríl 1958. Þeirra synir: Ari Geir, f. 1982 og Guðmundur Geir, f. 1997. Barnabarnabörn Ingibjargar eru átján og eitt barnabarnabarnabarn.
Ingibjörg ólst upp í Litladal í Skagafirði. Möguleikar til menntunar voru litlir en hún var fróðleiksfús. Ingibjörg var einn vetur í Alþýðuskólanum á Laugum og annan vetur í húsmæðraskólanum þar og vann fyrir skólavistinni jafnframt þar á staðnum. Ingibjörg og Guðmundur byrjuðu að búa í Litladal 1941 en fluttust að Klauf í Eyjafirði 1943 þar sem um skeið var stundaður tilraunabúskapur í kornrækt á vegum Kaupfélags Eyfirðinga. Þegar kornræktinni var hætt leigðu þau jörðina og keyptu hana síðan 1948. Þau bjuggu allan sinn búskap í Klauf eða til 1988. Ingibjörg starfaði með kvenfélaginu Voröld í Öngulsstaðahreppi í fjölmörg ár og var þar heiðursfélagi. Síðustu æviár sín bjó hún á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri.
Útför Ingibjargar verður gerð frá Munkaþverárkirkju í dag, 16. nóvember 2012, og hefst athöfnin kl. 13.30.
Mamma var orðin 96 ára þegar hún kvaddi. Það er erfitt að gera sér í hugarlund breytingarnar sem hún hefur upplifað á langri ævi. Hún fæddist í skagfirskum dal í Tungusveit í Lýtingsstaðahreppi og upplifði að rafmagnið kom og útvarpið, stríðið hófst og því lauk, já og sjónvarpið kom.
Mamma fór í skóla þegar hún var 10 ára, í einn mánuð, og svo í þrjá mánuði veturinn fyrir fermingu. Árið 1936 fór hún í Alþýðuskólann á Laugum í Þingeyjarsýslu og var þar í tvo vetur. 1938 fór hún síðan í Húsmæðraskólann á Laugum. Hún vann fyrir skólavistinni með því að vinna á hótelinu á Laugum á sumrin og með því að aðstoða á staðnum á veturna. Hún nýtti sér vel það sem hún lærði og bjó að námsdvölinni alla ævi.
Á heimilinu í Klauf þar sem þau pabbi bjuggu allan sinn búskap gekk mamma að störfum bæði úti og inni. Eldhúsið var hennar ríki, í sjálfsþurftarbúskapnum skipti öllu að vera útsjónarsamur og kunna til verka. Allur matur var unninn heima og forða safnað til vetrarins. Hún var nýtin og meinilla við að henda nothæfum hlutum, ja eða smávægilega löskuðum. Í fræðum þeim sem móðir okkar tileinkaði sér á húsmæðraskólanum var matargerð auðvitað í hávegum enda vorum við systkinin alin upp við að bera virðingu fyrir mat og ekki síður matartímunum. Þeir voru fimm talsins daglega, hið minnsta og engar afsakanir teknar gildar ef reynt var að sleppa þeim, nema hugsanlega ef bjarga þurfti heyjum undan rigningu.
Mamma vann alla tíð mikið, vinnan og verkin gengu fyrir öllu þó hún léti það einstaka sinnum eftir sér að lyfta sér upp. Lífsbaráttan var enda hörð, sérstaklega á fyrri hluta síðustu aldar og ekki um annað að ræða en að vinna mikið. Þau pabbi byrjuðu búskap í Klauf sem leiguliðar en tókst að komast vel af með iðni og fyrirhyggju þó stundum væri þröngt í búi. Það var oft gestkvæmt á heimilinu í Klauf og hún lagði mikið upp úr því að gera vel við gesti. Fjöldi barna og unglinga dvaldi þar á sumrin í gegnum árin. Nafnið Abba heyrðist oft þegar vinir og kunningjar frá fornu fari eða skagfirskir ættingjar komu í heimsókn.
Sem uppalandi brýndi móðir mín fyrir okkur systkinunum að tala rétt mál og var óþreytandi að leiðbeina okkur í þeim efnum. Hún kunni ógrynni vísna og fór oft með. Mamma var vel að sér um sveitir og fólkið sem þar bjó og mjög minnug. Það virtist festast í minni hennar um áratugi það sem hún hafði einhvern tíma fræðst um og fléttast hafði saman við ættfræðina sem hún hafði á takteinum.
Mamma kenndi okkur að heiðarleiki væri mikilvægari en flest annað. Hún kunni á mjög mörgu skil og sem börn gátum við systkinin alltaf spurt mömmu, hún virtist vita allt og hafði skoðanir á flestu, bæði mönnum og málefnum, allt frá kúabúskap og kartöflum upp í álver og virkjanir.
Það eru forréttindi að hafa getað alla sína ævi hringt í mömmu til að spyrja hana álits eða ráða eða fræðast um eitthvað og viðbrigði að geta það ekki lengur. Mamma var hvíldinni fegin eftir langa ævi og við systkinin þökkum henni samfylgdina og allt.
Geir, Hólmfríður, Leifur
og Anna Sigríður.
Að flytja svona inn á rótgróið sveitaheimili er ekki alltaf einfalt. Það var reyndar alltaf sama hvaða vitleysu ég sagði eða gerði, Guðmundur gerði alltaf gott úr því. Hann kenndi mér handtökin við sauðburðinn og hvatti mig áfram við það sem ég tók mér fyrir hendur. Ingibjörg lagði mér líka gjarnan lífsreglurnar hvað varðaði eldamennsku og annað, örugglega ekki vanþörf á.
Á þessum árum tíðkaðist gjarnan að kynslóðir byggju saman. Það gat tekið á fyrir alla. Ég gekk sjálfviljug inn í það mynstur en því miður reyndist það mér of erfitt. Ég tók ekki þátt í lífi Ingibjargar síðustu árin en veit að hennar var vel gætt af fjölskyldu og vinum.
Ég vil óska Ingibjörgu góðrar ferðar á önnur svið, þar sem henni verður tekið opnum örmum.
Hvíl í friði.
Þórdís Karlsdóttir.
Við látum stöku eftir Hjört Kristmundsson verða okkar kveðjuorð.
Árin tifa, öldin rennur;
ellin rifar seglin hljóð;
fennir yfir orðasennur,
eftir lifir minning góð.
Blessuð sé minning þín, elsku amma.
Guðmundur, Klara og Auðbjörg.
Mig langar til að minnast einnar ferðar sem við fórum fyrir nokkrum árum, en að þínu mati var Skagafjörðurinn sá fallegasti á landinu, enda varstu þar fædd og uppalin. Þú ljómaðir alveg þegar við buðum þér í bíltúr vestur og þegar við keyrðum yfir sýslumörkin heyrðist í þér: „Það er alltaf fallegast í Skagafirði“ þrátt fyrir að það sæist vart út úr augum fyrir þoku. Þessi orð þín rifjum við alltaf upp þegar við komum í Skagafjörðinn eftir þetta og hlæjum.
Takk elsku amma fyrir allt og allt, þín verður sárt saknað en minningar um yndislega ömmu, oft og tíðum afar orðhnyttna og minnuga með eindæmum, munu ylja mér og minni fjölskyldu um ókomin ár. Við rifjum oft upp eitthvað fyndið sem þú hefur látið út úr þér, en er varla prenthæft.
Eftirfarandi ljóð fann ég í bókinni Ljóð dagsins, sem herra Sigurbjörn Einarsson tók saman. Þetta ljóð er við þinn afmælisdag og fannst mér það vel viðeigandi:
Um fjöllin þýðir þokuvængir strjúka,
en þynnast brátt og lyftast himins til.
Burt líður nóttin. Morgunrökkrið mjúka
sem minning bliknuð rís úr tímans hyl.
Og fornan unað finnur hugur
gleyminn,
sem fljóti' að nýju öldur runnins straums.
En veröldin er þögul, föl og feimin
sem furðusýn á milli vöku' og draums. –
Með eftirvænting glaðri get ég kropið,
og grunur djúpur tekur fyrir mál.
Mér finnst, að ljóssins helga hlið sé opið
og hljóðlátt bíði eftir minni sál.
Óbeðið rétti að mér Drottins mund
ósegjanlegra fyrirheita stund.
(Jakob Jóh. Smári)
Guð veri með þér, elsku amma mín.
Þín sonardóttir,
Heiður Hjaltadóttir.
Hár aldur ömmu ber í sjálfu sér aldarfarslýsingu. Hún fæddist í Litla-Dal í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði árið 1916 og 1943 settust þau afi að í Klauf í Eyjafirði. Amma naut hefðbundinnar skólagöngu þess tíma en var líka einn vetur í Alþýðuskólanum á Laugum og svo annan vetur í húsmæðraskólanum þar og vann fyrir skólavistinni á staðnum. Sund lærði hún snemma og stundaði lengi sér til heilsubótar, ekki síst á sérstökum konusundskvöldum í sundlauginni á Laugalandi.
Skagafjörðurinn átti alltaf sinn stað í hjarta ömmu þótt hún hafi búið í rúm sextíu ár hinum megin Tröllaskagans. Þar var hún kölluð Abba og átti góða vini og ættingja. Og óvíða þótti henni fegurra en þar, svo vítt til fjalla og breiður fjörður, annað en óttaleg þrengslin í Eyjafirðinum þar sem fjöllin ginu yfir og ætluðu bókstaflega að kæfa mann.
Við systkinin nutum góðs af því að alast upp með afa og ömmu í sama húsi. Fengum umönnun tveggja kynslóða og uppeldisaðstæður eins og best varð á kosið. Yfirdrifið af ást og kærleik. Einhverju munaði þó á þessum tveimur kynslóðum. Kom það e.t.v. skýrast fram í matarvenjum. Það var iðulega til skyrhræringur í ísskápnum hjá afa og ömmu, helst þannig að skyrið væri aðeins farið að rífa í. Stundum var boðið í selspik, grasaystinginn borðaði þó enginn nema afi og amma. Það þekktist þó ekki matvendni í Klauf og ef á henni örlaði hjá sumrungum þá var amma snögg að venja fólk af slíku með snaggaralegum athugasemdum á borð við að allt almennilegt fólk æti allan mat. Afi og amma höfðu líka annað hugarfar gagnvart mat. Minnisstætt er þegar kýrin sem Laufey átti reyndist ekkert mjólka og var lógað. Þá ræddu þau sín á milli við matarborðið hversu kýrin Ljómalind væri seig undir tönn. Pabbi og mamma fölnuðu upp og Laufey beit á jaxlinn því auðvitað vissum við alveg hvaðan maturinn kom. Mikil áhersla var lögð á að eiga matarbirgðir, eins og eðlilegt má teljast á stóru heimili. Alltaf nóg í kistunni, slátur, heimagerðir sperðlar og iðulega margir lítrar af berjum verkaðir á hverju hausti. Afi stundaði líka veiðimennsku enda alinn upp við silungsveiðar í Ljósavatni. Það át heldur enginn fiskhausa eins og hann, eða fitu ef út í það er farið.
Amma lét sér ávallt annt um sína, var félagslynd og gestrisin með afbrigðum og ef ekki höfðu komið alla vega tveir fyrir hádegi á sunnudegi í heimsókn þá hafði bara ekki nokkur maður látið sjá sig. Hún sinnti sínu fólki af kostgæfni, og við systkinin fengum sérmeðferð, atlæti og ástúð í ómældu magni.
Hvíl í friði, amma.
Laufey Leifsdóttir,
Karl Óttar Leifsson, Ingibjörg Leifsdóttir.
Og þá leitar hugurinn gjarna aftur til þess tíma er upphaf kynna okkar varð. Ég flutti hingað í Brúnalaug fyrir 26 árum og þekkti sárafáa. Mér og mínum til allra heilla kynntist ég Ingibjörgu í Klauf fljótlega eftir komu mína hingað. Þau kynni reyndust mér til mikillar gleði og gæfu. Við áttum ófáar gleðistundir yfir kaffitári og alltaf var bakkelsi með. Eins og títt er um íslenskar konur töluðum við saman um börn okkar og bú. Við ræddum þjóðmálin og vorum ekki alltaf sammála. Stundum gat jafnvel hitnað í kolunum, til dæmis í kringum kosningar og fleiri viðburði. Við ræddum veðrið og uppskeruna. Glöddumst saman yfir góðu veðri og góðri uppskeru. Og um bókmenntir og hannyrðir. Bókaáhugi okkar var á stundum misjafn og í hannyrðum var Ingibjörg óneitanlega mun betri en ég, en ég lærði nú æði margt af því tagi hjá henni. Hún hvatti mig til dáða. Til að ferðast, til að prjóna og til lesturs góðra bóka. Mér fannst ég alltaf velkomin til hennar. Þau voru ófá sokkaplöggin og vettlingar sem vermdu litla fætur og hendur barna minna.
Með söknuði og trega kveð ég þig nú, aldna vinkona, en samt með gleði í hjarta. Gleði vegna þess að ég veit að lúinn líkami og lúin sál fá loks kærkomna hvíld.
Megi góður guð fylgja þér til nýrra heima.
Innilegar samúðarkveðjur sendum við aðstandendum Ingibjargar.
Hafðu hjartans og bestu þakkir fyrir allt.
Anna Sigríður og
fjölskylda í Brúnalaug.