Varfærinn Xi Jinping, nýr leiðtogi kínverskra kommúnista.
Varfærinn Xi Jinping, nýr leiðtogi kínverskra kommúnista.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fréttaskýring Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ekki er búist við miklum breytingum á stefnu stjórnvalda í Kína eftir að ný fastanefnd stjórnmálaráðs Kommúnistaflokksins tekur við völdunum undir forystu Xi Jinping, nýs leiðtoga flokksins.

Fréttaskýring

Bogi Þór Arason

bogi@mbl.is

Ekki er búist við miklum breytingum á stefnu stjórnvalda í Kína eftir að ný fastanefnd stjórnmálaráðs Kommúnistaflokksins tekur við völdunum undir forystu Xi Jinping, nýs leiðtoga flokksins. Flestir nefndarmannanna eru taldir fastheldnir á rótgrónar venjur og hefðir valdaflokksins og nýja forystusveitin er án tveggja manna sem taldir voru líklegastir til að beita sér fyrir pólitískum umbótum.

Eins og spáð hafði verið var nefndarmönnunum fækkað úr níu í sjö til að auðvelda nefndinni að ná samstöðu um ákvarðanir í erfiðum úrlausnarefnum á næstu árum. Það kom hins vegar meira á óvart að Xi Jinping var ekki aðeins gerður að aðalritara kommúnistaflokksins heldur einnig að formanni hermálanefndar miðstjórnarinnar og þar með yfirmanni hersins. Þegar fráfarandi forseti, Hu Jintao, varð aðalritari flokksins fyrir tíu árum hélt forveri hans í forsetaembættinu, Jiang Zemin, formennskunni í hermálanefndinni í tvö ár til viðbótar.

Þetta ætti að styrkja stöðu nýja leiðtogans en þykir ekki auka líkurnar á því að stefnunni verði breytt. Litið er á Xi Jinping sem málamiðlunarlausn, mann sem tvær helstu fylkingarnar í flokknum gátu sætt sig við, þ.e. bandamenn Hu Jintao annars vegar og skjólstæðingar Jiangs Zemin hins vegar. Þessir tveir menn eru taldir hafa ráðið mestu þegar nýja forystusveitin var valin á bak við tjöldin með hrossakaupum fráfarandi og fyrrverandi leiðtoga flokksins. Svo virðist sem Hu Jintao og bandamenn hans hafi látið í minni pokann fyrir skjólstæðingum Jiangs þótt bandamenn Hu séu enn áhrifamiklir í miðstjórninni, að sögn fréttaskýranda The Wall Street Journal .

Skjólstæðingar Jiangs öflugir

Fyrir valdaskiptin voru tveir af forystumönnum kommúnistaflokksins, Wang Yang og Li Yuanchao, taldir líklegastir til að beita sér fyrir pólitískum umbótum, meðal annars auknu lýðræði innan flokksins. Þeir fengu ekki sæti í nýju fastanefndinni.

Gert er ráð fyrir því að einn nefndarmannanna, Li Keqiang, taki við embætti forsætisráðherra, en hann hefur notið stuðnings Hu Jintao. Aðeins tveir af nefndarmönnunum sjö eru taldir vera bandamenn Hu Jintao og annar þeirra, Liu Yunshan, hefur reyndar einnig verið í nánum tengslum við Jiang Zemin, að sögn Chengs Li, sérfræðings í kínverskum stjórnmálum við Brookings-stofnunina. „Þessi skortur á jafnvægi [milli valdafylkinganna] verður hugsanlega alvarlegt vandamál næstu mánuði eða árin,“ hefur fréttavefur CNN eftir Cheng Li. Hann spáir því að kínverskur almenningur, sem vilji pólitískar umbætur, verði lítt hrifinn af nýju forystusveitinni. „Þetta flokksþing hefur sent mjög skýr skilaboð um að nýja forystan verði íhaldssöm í stjórnmálunum,“ segir hann.

Joseph Cheng, stjórnmálaskýrandi við Borgarháskóla Hong Kong, tekur í sama streng. „Uppstillingin á forystunni er verulega íhaldssöm,“ hefur fréttaveitan AFP eftir honum. „Flokkurinn virðist vita mjög lítið um hvernig næsti umbótakafli eigi að vera og hefur nú sýnt að samstaða er um að fara mjög varlega.“

Bo Zhiyue, sérfræðingur í kínverskum stjórnmálum í Singapúr, telur að litlar breytingar verði í Kína eftir valdaskiptin. „Ég tel ekki að við getum flokkað ráðamennina í Kína sem annaðhvort umbótasinna eða íhaldsmenn; ef andrúmsloftið einkennist af íhaldssemi eru þeir allir íhaldssamir, ef andrúmsloftið gefur umbótum byr undir báða vængi eru allir umbótasinnar,“ hefur AFP eftir honum.

Jean-Pierre Cabestan, stjórnmálaskýrandi við Baptistaháskólann í Hong Kong, telur að bandamenn Jiangs Zemin séu mjög öflugir í nýju fastanefndinni og áhrif Hu Jintao hafi minnkað. Hann segir að framvindan ráðist af því hvort nýi leiðtoginn sýni forystuhæfileika og beiti sér fyrir umbótum. „Getur hann komið á umbótum? Ég er mjög efins um það.“

Tekur ekki áhættu

Í ræðu sem nýi leiðtoginn flutti í gær þegar nýja fastanefndin var kynnt hét hann því að skera upp herör gegn spillingu í stjórnkerfinu og bæta lífskjör Kínverja. Xi Jinping hefur gefið mjög litlar vísbendingar um hvernig hann ætli að stjórna landinu. Hann var mjög varfærinn fyrir flokksþingið, studdi mál sem allir styðja og forðaðist hvers konar yfirlýsingar sem gátu mögulega veikt stöðu hans sem þess leiðtogaefnis sem mest samstaða var um.

„Hann er maður sem spilar fyrir liðið sitt. Hann fer eftir leikreglum flokksins síns,“ hefur AFP eftir kínverska stjórnmálaskýrandanum Willy Lam. „Hann vill ekki taka áhættu sem gæti stefnt frama hans sem stjórnmálamanns í hættu.“

Xi Jinping er 59 ára og einn af „smáprinsunum“ svonefndu, sonum frammámanna kínverskra kommúnista í byltingunni árið 1949. Hann er sonur Xi Zhongxun, sem barðist með Maó Zedong í byltingunni og var aðstoðarforsætisráðherra þar til hann féll í ónáð í menningarbyltingunni og var settur í fangelsi. Xi Jinping byrjaði að klifra upp metorðastigann á þrítugsaldri. Hann varð leiðtogi flokksins í Sjanghaí og fékk sæti í fastanefnd stjórnmálaráðsins 2007. Árið eftir varð hann varaforseti.