Eyðilegging Piltur við húsarústir eftir árás Ísraela á Gazaborg.
Eyðilegging Piltur við húsarústir eftir árás Ísraela á Gazaborg. — AFP
Að minnsta kosti fimmtán Palestínumenn, þeirra á meðal börn, og þrír Ísraelar hafa beðið bana í loftárásum Ísraelshers á Gaza-svæðið og flugskeytaárásum Hamas-samtakanna á Ísrael síðustu tvo daga.

Að minnsta kosti fimmtán Palestínumenn, þeirra á meðal börn, og þrír Ísraelar hafa beðið bana í loftárásum Ísraelshers á Gaza-svæðið og flugskeytaárásum Hamas-samtakanna á Ísrael síðustu tvo daga.

Blóðsúthellingarnar hófust eftir að Hamas-samtökin hófu nýja hrinu flugskeytaárása á Ísrael. Ísraelsher svaraði með loftárásum á Gazaborg í fyrradag og yfirmaður hernaðararms Hamas beið bana í einni þeirra.

Hamas-menn skutu hundruðum flugskeyta á Ísrael og þrír Ísraelar – tvær konur og karlmaður – létu lífið þegar flugskeyti lenti á efstu hæð byggingar í bænum Kiryat Malachi, um 25 km norðan við Gaza. Fjögurra ára piltur og tvö kornabörn særðust í árásinni.

Minnst sjö Palestínumannanna sem biðu bana voru vopnaðir Hamas-menn en á meðal þeirra voru einnig þrjú börn, kona og tveir aldraðir karlmenn.

Útilokar ekki landhernað

Óttast er að blóðsúthellingarnar leiði til nýs stríðs milli Ísraela og Hamas eins og fyrir fjórum árum þegar að minnsta kosti 1.200 manns biðu bana. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði að til greina kæmi að hefja landhernað á Gaza-svæðinu ef Hamas héldi áfram flugskeytaárásunum. Hann sakaði Hamas um að hafa framið stríðsglæpi gagnvart Ísraelum og Palestínumönnum með því að skjóta flugskeytum á óbreytta borgara í Ísrael og fela sig meðal óbreyttra borgara á Gaza-svæðinu. Ísraelar segja að Hamas-mennirnir hafi komið flugskeytunum fyrir í íbúðahverfum af ásettu ráði.

Willam Hague, utanríkisráðherra Bretlands, sagði að Hamas-samtökin bæru mesta ábyrgð á blóðsúthellingunum en hvatti einnig Ísraela til að gera ekki árásir sem stefndu lífi óbreyttra borgara í hættu eða gætu leitt til stríðs.

Mohammed Mursi, forsætisráðherra Egyptalands, fordæmdi árásir Ísraela og kallaði sendiherra Egypta í Ísrael heim. bogi@mbl.is