Páll Harðarson
Páll Harðarson
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, telur mjög æskilegt að sjávarútvegs- og orkufyrirtæki verði skráð í Kauphöllina. Þetta kom fram í þættinum Viðskipti á mbl.is í gær, en fyrsti þátturinn í umsjón Sigurðar Más Jónssonar var sendur út í gær.

Páll telur að mörg sjávarútvegsfyrirtæki gætu sómt sér vel á markaði. Þó sé óvissan um starfsumhverfi greinarinnar til vandræða, þar sem hluthafar þurfi að hafa slíkar upplýsingar á hreinu.