Vilborg Arna Gissurardóttir
Vilborg Arna Gissurardóttir
Vilborg Arna Gissurardóttir hefur sent jólakveðju frá Suðurskautslandinu en í nýrri bloggfærslu segist hún hafa vaknað spennt síðastliðinn laugardagsmorgun eftir gott færi síðustu daga.

Vilborg Arna Gissurardóttir hefur sent jólakveðju frá Suðurskautslandinu en í nýrri bloggfærslu segist hún hafa vaknað spennt síðastliðinn laugardagsmorgun eftir gott færi síðustu daga. Þegar hún leit hinsvegar út úr tjaldinu sínu þá var byrjað að snjóa og færðin því þung þann daginn. Þrátt fyrir það tókst henni að skíða 22 kílómetra.

Meðan á pólgöngunni stendur safnar Vilborg Arna áheitum til styrktar Lífi – styrktarfélagi kvennadeildar Landspítalans. Hægt er að heita á hana í síma 908-1515 (1.500 kr.) eða með frjálsum framlögum á vefsíðunni www.lifsspor.is