Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Áramótabrennur eru með hefðbundnu sniði í Reykjavík en alls verða þær tíu talsins og verður eldur borinn að bálköstunum kl. 20:30 að kvöldi gamlársdags.

Börkur Gunnarsson

borkur@mbl.is

Áramótabrennur eru með hefðbundnu sniði í Reykjavík en alls verða þær tíu talsins og verður eldur borinn að bálköstunum kl. 20:30 að kvöldi gamlársdags. Eina undantekningin er kösturinn við Úlfarsfell sem kveikt verður í kl. 14:30. Borgarbúar eru hvattir til að fjölmenna á brennur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg þar sem fólk er beðið að mæta frekar með góða skapið en það vonda og skilja skotelda eftir heima.

Brennurnar verða á sömu slóðum og undanfarin ár, en í Laugardal verður brennustæðið fært vegna byggingar þjónustuhúss í nágrenninu og er það gert í samráði við Eldvarnaeftirlitið.

Byrjað verður að safna í borgarbrennurnar fimmtudaginn 27. desember og hætt að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar samkvæmt viðmiðunum Eldvarnaeftirlitsins, þó í síðasta lagi kl. 12:00 á gamlársdag.

„Það er liðin tíð að fólk komi með drasl úr geymslum enda er þar margt sem ekki má fara á brennurnar,“ segir Þorgrímur Hallgrímsson, brennukóngur og rekstrarstjóri hjá Reykjavíkurborg. Hann segir að plast, gúmmí og unnið timbur eigi ekki erindi á köstinn. „Hérna áður fyrr var öllu hent á brennurnar,“ segir hann. „Þá gerðu bara krakkarnir í hverfinu brennur út um allt en nú þarf að sækja um leyfi fyrir þeim. Það er komin reglugerð um stærð bálkastanna og um fjarlægð frá húsum og þess háttar. Byggðin hefur þést svo mikið á undanförnum árum að það verður að gæta fyllsta öryggis. Það hafa annars ekki orðið nein alvarleg slys í nokkuð langan tíma. Ég held ég muni það rétt að það séu um tíu til fimmtán ár síðan síðast varð slys. Það var á þeim tíma sem brennurnar voru látnar brenna út, en núna slökkvum við í þeim,“ segir Þorgrímur.

Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar standa brennuvaktina. Þeir taka á móti efni í brennurnar og verða svo á vakt við þær fram eftir nýársnótt þar til slökkt hefur verið í glæðunum.