Sigurður Ingimundarson
Sigurður Ingimundarson
Keflvíkingar, undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar, hafa samið við Bandaríkjamanninn Billy Baptist um að hann leiki með úrvalsdeildarliði félagsins í körfuknattleik eftir áramót, að því er fram kemur á vef félagsins.

Keflvíkingar, undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar, hafa samið við Bandaríkjamanninn Billy Baptist um að hann leiki með úrvalsdeildarliði félagsins í körfuknattleik eftir áramót, að því er fram kemur á vef félagsins. Hann á að fylla skarð landa síns, Stephen McDowel, sem óskaði eftir því að verða leystur undan samningi. Baptist er 25 ára gamall, lék með Quincy-háskólanum og þá reyndi hann fyrir sér bæði á Spáni og í Þýskalandi. gummih@mbl.is