Leikskáld Apatow hefur skrifað handrit að gamanmyndum, leikstýrt og framleitt. Nú spreytir hann sig á leikriti.
Leikskáld Apatow hefur skrifað handrit að gamanmyndum, leikstýrt og framleitt. Nú spreytir hann sig á leikriti. — AFP
Kvikmyndaleikstjórinn Judd Apatow, sem er hvað þekktastur fyrir gamanmyndir á borð við The 40-Year-Old Virgin og Knocked Up, er að skrifa sitt fyrsta leikrit og segir það einhverja þá bestu hugmynd sem hann hafi fengið, að því er fram kemur í frétt á...
Kvikmyndaleikstjórinn Judd Apatow, sem er hvað þekktastur fyrir gamanmyndir á borð við The 40-Year-Old Virgin og Knocked Up, er að skrifa sitt fyrsta leikrit og segir það einhverja þá bestu hugmynd sem hann hafi fengið, að því er fram kemur í frétt á vef dagblaðsins The Guardian. Apatow er orðinn þaulvanur kvikmyndahandritaskrifum og forvitnilegt að vita hvernig honum gengur að skrifa fyrir leiksvið. Leikritið verður um fórnarlömb réttarkerfisins, að sögn Apatows, og þær áskoranir sem þau þurfa að takast á við. Verði verkið sett upp á Broadway má gera ráð fyrir því að þekktir leikarar leiki í því þar sem sem Apatow þekkir þá ófáa, m.a. Will Ferrell, Steve Carell og Jason Segel.