Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen lagði upp síðara mark Cercle Brugge þegar liðið gerði 2:2-jafntefli við Beveren í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardagskvöldið.

Eiður Smári Guðjohnsen lagði upp síðara mark Cercle Brugge þegar liðið gerði 2:2-jafntefli við Beveren í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardagskvöldið. Cercle Brugge kastaði frá sér sigrinum en þegar fimm mínútur voru til leiksloka var liðið 2:0 yfir en Beveren jafnaði metin með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla á lokamínútunum.

Eiður og Arnar Þór Viðarsson léku allan tímann fyrir Cercle sem er sem fyrr í neðsta sæti deildarinnar, fjórum stigum frá næstu liðum.

Á öðrum degi jóla sækir Cercle Brugge lið Lokeren heim en Arnar Þór lék með Lokeren-liðinu frá 1997 til 2006 og mun örugglega fá góðar móttökur.

gummih@mbl.is