Leikarinn Vin Diesel mun bregða sér í hlutverk lögreglumannsins Kojaks í væntanlegri kvikmynd um kappann.
Kojak kannast þeir Íslendingar við sem komnir eru á og yfir miðjan aldur úr sjónvarpsþáttum sem sýndir voru um hann hér á landi. Leikarinn Telly Savalas lék Kojak og gæddi sér jafnan á sleikipinnum í þáttunum. Þættirnir um Kojak voru framleiddir á áttunda áratugnum í Bandaríkjunum.
Diesel hefur einkum leikið harðhausa, í kvikmyndum á borð við The Fast and the Furious , og virðist ætla að halda sig við slík hlutverk. Hann þarf hins vegar að æfa sig í því að sjúga sleikjó af jafnmiklu kappi og Savalas.