Jólakyrrð Gott er að tæma hugann með heitu baði eða göngutúr.
Jólakyrrð Gott er að tæma hugann með heitu baði eða göngutúr. — Morgunblaðið/Ernir
Þá líður að því að klukkur landsins hringi inn heilög jól. Eftir annasama daga á aðventu gefst nú ljúfur og góður tími til að eyða með vinum og fjölskyldu.
Þá líður að því að klukkur landsins hringi inn heilög jól. Eftir annasama daga á aðventu gefst nú ljúfur og góður tími til að eyða með vinum og fjölskyldu. Einbeitum okkur að því að stilla hugann en það getur jú tekið dálítinn tíma að ná sér niður eftir stress sem oft vill fylgja fyrir hátíðar. Kannski væri ráð að skella sér í langt og gott bað eða bara í heita pottinn og tæma algjörlega hugann. Þetta hjálpar manni að finna jólafriðinn og jólabarnið innra með sér. Með ósk um gleðileg jól og ljúfar stundir yfir hátíðardagana.