Aðfaranætur laugardags og sunnudags heimsóttu lögreglumenn flest veitingahús í miðbænum.
Aðfaranætur laugardags og sunnudags heimsóttu lögreglumenn flest veitingahús í miðbænum. Í kjölfarið lokaði lögreglan fjórum veitingahúsum en 10-20 veitingastaðir verða kærðir fyrir ýmis brot er varða rekstur veitingahúsa, að því er kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér í gær. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.