Krukka Góða sultu er nauðsyn að eiga í ísskápnum, ofan á brauð eða í sósuna.
Krukka Góða sultu er nauðsyn að eiga í ísskápnum, ofan á brauð eða í sósuna. — Morgunblaðið/Arnaldur
Bloggsíðan www.blog.katrinbjork.com er full af fallegum hugmyndum og þá sérstaklega jólahugmyndum þessa dagana.
Bloggsíðan www.blog.katrinbjork.com er full af fallegum hugmyndum og þá sérstaklega jólahugmyndum þessa dagana. Líklegast hafa flestir nóg að gera í dag en ef þig myndi langa til að búa til fíkju- eða chili-sultu svona korteri fyrir jól þá finnur þú uppskriftir að slíku hér. Katrín Björk sem heldur vefsíðunni úti er mikill fagurkeri og eins eru myndirnar hjá henni mjög fallegar. Enda starfar hún sem frílans ljósmyndari. Á síðunni segir að Katrín Björk hafi mikinn áhuga á hönnun, listum, ferðalögum og heilbrigðum lífsstíl. Hún hefur gott auga fyrir fallegum smáatriðum og hlutum sem kristallast í óskalistum hennar fyrir jólin. Falleg síða og skemmtileg sem vert er að smella í möppuna og skoða reglulega til að gleðja augað í skammdeginu.