Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, formaður stjórnar Ólafíusjóðs, sem starfar á vegum íslenska safnaðarins í Noregi, hefur afhent Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð 75.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, formaður stjórnar Ólafíusjóðs, sem starfar á vegum íslenska safnaðarins í Noregi, hefur afhent Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð 75.000 norskar krónur, eða rúmlega ein og hálf milljón íslenskra króna, frá safnaðarfólki í Noregi. Er styrknum ætlað að renna til hjálparstarfs kirkjunnar á Íslandi fyrir jólin og vilja Íslendingar í Noregi með því leggja lið löndum sínum heima. Með styrknum fylgja hlýjar jólakveðjur. Jónas Þórisson veitti styrknum viðtöku. Ólafíusjóður er nefndur í höfuðið á trúkonunni Ólafíu Jóhannsdóttur, sem starfaði meðal þeirra sem minnst máttu sín í Osló upp úr aldamótunum 1900. Hlutverk sjóðsins er að aðstoða bágstadda Íslendinga bæði í Noregi og á Íslandi.

Ólafía var brautryðjandi í hjálparstarfi á sinni tíð og hafa Norðmenn heiðrað minningu hennar með ýmsum hætti. Brjóstmynd af Ólafíu stendur nærri Vaterland-brúnni í Osló og í nágrenninu er gata nefnd eftir henni; Olafiagangen. Ólafía sinnti starfi sínu einkum meðal þeirra kvenna sem minnst máttu sín í samfélaginu og urðu að þola kynferðisofbeldi. Þegar Norðmenn settu á stofn miðstöð fyrir leiðbeiningar um getnaðarvarnir og meðhöndlun kynsjúkdóma nefndu þeir hana því Olafiaklinikken í höfuðið á Ólafíu.