Maður íklæddur jólasveinabúningi var handtekinn í borginni Austin í Texasríki í Bandaríkjunum eftir að hafa ritað með krít á stéttina fyrir framan þinghúsið. Kemur þetta fram á vef bandarísku fréttaveitunnar Huffington Post.

Vitni segjast hafa séð Sveinka þar sem hann hvatti nærstödd börn til þess að rita hvatningarorð um betri heim á stéttina. Ekki vildi betur til en svo að Sveinki var samstundis tekinn höndum og sakaður um refsiverða háttsemi. Nærstaddir brugðust ókvæða við og bentu á að fleiri en jólasveinninn hefðu ritað á stéttina en slíkt skeyttu laganna verðir ekki um heldur leiddu jólasveininn á brott.