Stund sannleikans. A-Enginn
Norður | |
♠DG7 | |
♥9 | |
♦D98643 | |
♣Á42 |
Vestur | Austur |
♠9632 | ♠K1084 |
♥G864 | ♥ÁK32 |
♦KG105 | ♦Á72 |
♣5 | ♣K6 |
Suður | |
♠Á5 | |
♥D1075 | |
♦– | |
♣DG109873 |
Cezary Balicki bregst sjaldan í vörninni, en „skýst þótt skýr sé“. Hann var hér í austur í vörn gegn 5♣ dobluðum. Makker hans kom út með ♥4 (fjórða hæsta) og Balicki átti slaginn á ♥K. Stund sannleikans.
Balicki lagði niður ♦Á í öðrum slag. Sagnhafi trompaði, stakk þrisvar hjarta í borði með ♣Á42 og svínaði fyrir ♠K. Ellefu slagir.
Spilið kom upp í pólsku meistaradeildinni fyrir nokkrum dögum og á hinu borðinu var Apolinary Kowalski í austur, einnig í vörn gegn laufsamningi. Hann fékk út hjarta, eins og Balicki, drap á kónginn og skipti yfir í trompsexu!
Sú frumlega vörn heldur sagnhafa í tíu slögum, hvað sem hann gerir. Í reynd stakk sagnhafi hjarta tvisvar með ♣Á4 og gaf þá á ♣K og háhjarta.
Synd og skömm að samningurinn var bara ÞRJÚ lauf, ekki fimm.