Sameinað sveitarfélag Garðabæjar og Álftaness, undir nafni Garðabæjar, hefur í samstarfi við Markaðsviðskipti Íslandsbanka gefið út skuldabréfaflokk til endurfjármögnunar á láni fyrir alls 1.187 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf til tíu ára og bera fasta 2,95% árlega vexti og verða skráð í Kauphöllina. Haft er eftir Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra sameinaðs sveitarfélags, að kjörin séu mjög góð og endurspegli trausta fjárhagsstöðu hins nýja sveitarfélags og um leið trú markaðarins á því.
Sameining Garðabæjar og Álftaness tók gildi 1. janúar 2013.