Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning þess efnis að Schaeferhundur væri laus á vappi fyrir utan leikskóla í umdæminu. Væri hann ógnandi og ekki þorandi að fara með börnin út úr húsinu undir slíkum kringumstæðum.
Haft var samband við hundafangara sem fór á staðinn. Hann kallaði á hundinn, sem kom þá askvaðandi að honum og beit hann í höndina, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.
Hundafangarinn náði að hrista hundinn af sér og kallaði síðan til annan hundafangara. Tókst þeim að handsama dýrið. Málið var tilkynnt til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, sem tók það í sínar hendur.