Frábær líkamsræktarstöð Mig langar að láta vita af góðri líkamsræktarstöð sem er REEBOK-stöðin í Holtagörðum. Þar er notalegt andrúmsloft og gott starfsfólk. Tækjasalurinn góður, alltaf næg bílastæði og ekki skemmir verðið fyrir.

Frábær líkamsræktarstöð

Mig langar að láta vita af góðri líkamsræktarstöð sem er REEBOK-stöðin í Holtagörðum. Þar er notalegt andrúmsloft og gott starfsfólk. Tækjasalurinn góður, alltaf næg bílastæði og ekki skemmir verðið fyrir. Hvet ég fólk til að koma og prófa þessa frábæru líkamsræktarstöð.

Ánægður notandi.

Nýr formaður

Nýr formaður Félags hjúkrunarfræðinga var kosinn um daginn og bar karlmaður sigur úr býtum. Karlmönnum fer víst fjölgandi innan félagsins. Ég held að það sé hið besta mál, launin fara þá kannski að hækka hjá hjúkrunarfræðingum.

Eftirlaunaþegi.