Barcelona, Real Madrid og Dortmund þykja afar líkleg til að komast í undanúrslitin í Meistaradeild Evrópu en dregið var til átta liða úrslitanna í Nyon í Sviss í gær.
Barcelona mætir fyrrverandi liðsmanni sínum Zlatan Ibrahimovic og félögum hans í hinu nýríka franska félagi París SG og fer fyrri leikurinn fram í París.
Real Madrid mætir Galatasaray frá Tyrklandi og byrjar heima gegn liðinu sem kom skemmtilega á óvart með því að sigra Schalke í Þýskalandi.
Dortmund dróst gegn Málaga og fer fyrri leikur liðanna fram á Spáni en Þjóðverjarnir eru sigurstranglegri í þessari viðureign.
Mesta spennan gæti orðið hjá Bayern München og Juventus en þessi gamalkunnu stórveldi mætast fyrst í München og síðan í Tórínó. Leikirnir í átta liða úrslitunum fara fram 2. og 3. apríl og 9. og 10. apríl. vs@mbl.is