Meleyri Sigurður Hreinsson, kallaður meðhjálpari, Baldvin Bergþórsson og Örn Gíslason halda um stjórnvölinn í rækjuverksmiðjunni.
Meleyri Sigurður Hreinsson, kallaður meðhjálpari, Baldvin Bergþórsson og Örn Gíslason halda um stjórnvölinn í rækjuverksmiðjunni. — Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
ÚR BÆJARLÍFINU Karl Ásgeir Sigurgeirsson Hvammstanga Rækjuverksmiðjan Meleyri, ein hin elsta á landinu, er komin aftur í rekstur. Fjölskyldufyrirtækið Nesfiskur ehf. í Garði keypti fyrirtækið um sl.

ÚR BÆJARLÍFINU

Karl Ásgeir Sigurgeirsson

Hvammstanga

Rækjuverksmiðjan Meleyri, ein hin elsta á landinu, er komin aftur í rekstur. Fjölskyldufyrirtækið Nesfiskur ehf. í Garði keypti fyrirtækið um sl. áramót og hefur verið unnið að endurbótum á liðnum vikum. Unnið er á einni vakt, kl. 7-15, og eru 12 starfsmenn að störfum. Tvö togskip fyrirtækisins, Sóley og Berglin, eru komin á rækjuveiðar norður af landinu og miðin eru nærri Grímsey. Skipin landa nú fyrst á Siglufirði, þangað er stutt á miðin. Stefnt er þó að löndun í heimahöfn, en sem stendur er dýpi tæplega nóg í Hvammstangahöfn fyrir svo djúprist skip.

Baldvin Þór Bergþórsson er stöðvarstjóri Meleyrar á Hvammstanga en Örn Gíslason er verkstjóri, hann hefur unnið við Meleyri frá upphafi, um 1973. Baldvin segir nýja eigendur hugsa gott til framtíðar á Hvammstanga.

Nú er komin miðgóa og má segja að veturinn hafi farið vel með íbúa héraðsins. Þó hafa komið nokkur mjög snörp norðanskot. Í síðustu viku var vonskuveður víða í héraðinu og setti þá niður mikinn snjó á Hvammstanga. Þurftu margir að finna skóflur og önnur verkfæri til að komast út úr húsum sínum. Ekki er talinn mikill klaki í jörðu og húnvetnskir bændur hafa ekki þurft að kvarta yfir svelluðum túnum, líkt og nágrannar þeirra í Skagafirði og austar.

Unnið er að viðbyggingu við veiðihúsið Tjarnarbrekku í Víðidal. Húsið er stækkað um sex lúxusherbergi og byggt nýtt anddyri fyrir veiðimenn. Veiðihús við margar laxveiðiár eru orðin að lúxushótelum og segja sumir það andsvar við dræmri veiði í mörgum ám. Oft er það svo að verð hóteldvalarinnar slagar hátt í verð veiðileyfa. Gott er ef hægt er að skapa þannig tekjur inn í héruðin. Á báðum þessum stöðum eru verk þessi unnin af heimamönnum.

Kirkjukór Hvammstanga fór um Suðurnes og heimsótti Sandgerði og Garð. Ferðin tókst vel að allra mati, góð leiðsögn Reynis Sveinssonar um byggðina, tónleikar í Safnaðarheimili Sandgerðis og messa í Útskálakirkju í Garði, þar sem húsfyllir var. Móttökur voru mjög góðar og að hluta í boði nýrra eigenda Meleyrar. Karlakórinn Lóuþrælar heldur nú um helgina til Eyjafjarðar og syngur í Laugarborg kl. 15 í dag, laugardag.