— Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Eimskip hóf strandsiglingar að nýju í gær, Brúarfoss kom til Ísafjarðar í gærmorgun.
Eimskip hóf strandsiglingar að nýju í gær, Brúarfoss kom til Ísafjarðar í gærmorgun. Ísafjörður er viðkomustaður á nýrri strandleið félagsins sem tengir landsbyggðina beint við Færeyjar, Skotland, England og meginland Evrópu og óbeint inn á Skandínavíu og Eystrasalt. Samskip áforma að hefja strandsiglingar eftir helgi en útboði ríkisins á þeim var frestað eftir að ljóst varð að félögin ætluðu að sigla kringum landið á ný.