Leifur Bárðarson
Leifur Bárðarson
Átak sem felst í því að byggja upp öflugan styrktarsjóð á vegum Umhyggju – félags til stuðnings langveikum börnum, hefst í dag.

Átak sem felst í því að byggja upp öflugan styrktarsjóð á vegum Umhyggju – félags til stuðnings langveikum börnum, hefst í dag. Fram kemur í tilkynningu, að átakið feli í sér að safna umhyggjusömum einstaklingum, fólki sem greiðir mánaðarlegt framlag í styrktarsjóðinn og stendur þannig á bak við langveik börn og fjölskyldur þeirra.

Haft er eftir Leifi Bárðarsyni, barnaskurðlækni og formanni Umhyggju, að átak umhyggjusamra einstaklinga að leggja styrktarsjóði Umhyggju lið hafi aldrei verið mikilvægara og um leið kærkomnara en nú.

„Kostnaðarþátttaka almennings í heilbrigðisþjónustu hefur aldrei í sögunni verið meiri en einmitt nú. Þess vegna er það mikill léttir fyrir langveik börn og fjölskyldu þeirra að vita til þess að til eru umhyggjusamir einstaklingar sem eru tilbúnir að stuðla að vellíðan og vonandi bata hjá barni sem berst við langvinn veikindi. Við vonumst því til að sjóðurinn verði sem öflugastur fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra sem þurfa sannarlega á aðstoð að halda. Nú þurfa allir að taka saman höndum því saman getum við gert lítil kraftaverk á hverjum degi,“ segir Leifur í tilkynningunni.

Hægt er að gerast umhyggjusamur einstaklingur með því að skrá sig á vefsíðunni www.umhyggjusamir.is eða með því að hringja í síma 5175858. Arion banki er bakhjarl átaksins..

Í félaginu Umhyggju starfa foreldrar langveikra barna og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins. Einnig eru félög og hópar foreldra langveikra barna í félaginu. Umhyggja er fulltrúi Íslands í norrænu samtökunum NOBAB og er einnig aðili að evrópsku samtökunum EACH.