Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur.
Framsýn – stéttarfélag hefur sent frá sér ályktun þar sem ítrekuð er sú áskorun til yfirvalda í Reykjavík að tryggja að flugvöllur verði áfram í Vatnsmýri.

Framsýn – stéttarfélag hefur sent frá sér ályktun þar sem ítrekuð er sú áskorun til yfirvalda í Reykjavík að tryggja að flugvöllur verði áfram í Vatnsmýri.

„Samkomulag ríkisstjórnarinnar og borgaryfirvalda um að reisa byggð í Vatnsmýrinni er fyrsta skrefið í að leggja niður Reykjavíkurflugvöll,“ segir m.a. í ályktuninni. „Sé það vilji borgaryfirvalda að loka flugvellinum og hunsa þannig vilja þjóðarinnar er spurning hvort borgarstjórn eigi ekki að ganga alla leið og afsala sér höfuðborgartitlinum.“