Karlmaður á þrítugsaldri var á mánudag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. mars í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti stúlkubarns í austurborg Reykjavíkur.

Karlmaður á þrítugsaldri var á mánudag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. mars í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti stúlkubarns í austurborg Reykjavíkur.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að fimm mánaða gömul stúlka hafi verið flutt með sjúkrabíl á Landspítalann á sunnudagskvöld þar sem hún lést aðfaranótt mánudags.

Bráðabirgðaniðurstaða réttarlæknisfræðilegrar rannsóknar bendir til þess að dánarorsökin hafi verið blæðingar í heila. Maðurinn er faðir stúlkunnar og í sambúð með móður hennar. Ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um málið að svo stöddu.