Sænsk kona var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi, fyrir manndráp af gáleysi, í héraðsdómi Suðurlands í gær.

Sænsk kona var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi, fyrir manndráp af gáleysi, í héraðsdómi Suðurlands í gær. Konan ók bifreið á vegslóða við Mið-Sel í Rangárþingi ytra, án nægilegrar aðgæslu með þeim afleiðingum að tæplega sex ára gömul stúlka varð fyrir bifreiðinni. Féll hún í götuna og hlaut svo mikla höfuðáverka að hún lést nokkrum klukkustundum síðar. Atvikið átti sér stað í ágúst 2011.

Konunni var einnig gert að greiða móður telpunnar 2,3 milljónir króna í miskabætur.

Í niðurstöðu dómsins segir að aðstæður allar og ungur aldur telpunnar hafi gert auknar kröfur til konunnar um ýtrustu varkárni sem og til þess að hún tryggði með fullnægjandi hætti að telpan væri ekki nálægt bifreiðinni þegar hún ók af stað. Konan bar fyrir dómi að bifreiðin hefði kippst af stað þegar hún hugðist aka áfram og hefði það komið henni á óvart. Hún hefði verið óvön að aka sjálfskiptri bifreið.