Ólafur Gústafsson
Ólafur Gústafsson
Toppliðin Kiel og Rhein-Neckar Löwen töpuðu bæði leikjunum í þýsku A-deildinni í handknattleik í gær. Meistarar Kiel lágu fyrir Göppingen, 33:29. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk fyrir Kiel og Guðjón Valur Sigurðsson tvö.

Toppliðin Kiel og Rhein-Neckar Löwen töpuðu bæði leikjunum í þýsku A-deildinni í handknattleik í gær. Meistarar Kiel lágu fyrir Göppingen, 33:29. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk fyrir Kiel og Guðjón Valur Sigurðsson tvö. Löwen sótti Flensburg heim og mátti þola tap, 30:27. Fyrir vikið hefur Flensburg blandað sér í titilbaráttuna. Liðið er fjórum stigum á eftir toppliði Kiel en á leik til góða. Ólafur Gústafsson skoraði tvö mörk fyrir Flensburg. Alexander Petersson skoraði sex mörk fyrir Löwen og Stefán Rafn Sigurmannsson fjögur. gummih@mbl.is