Svissneskir vísindamenn hafa þróað örlítið tæki til að mæla stöðugt ástand blóðsins, því er komið fyrir undir hörundinu og sendir það samstundis þráðlaust upplýsingar í farsíma um magn kólesteróls og fleiri þætti í allt að þrjá mánuði.

Svissneskir vísindamenn hafa þróað örlítið tæki til að mæla stöðugt ástand blóðsins, því er komið fyrir undir hörundinu og sendir það samstundis þráðlaust upplýsingar í farsíma um magn kólesteróls og fleiri þætti í allt að þrjá mánuði. Vonast er til að tækið verði sett á almennan markað innan fjögurra ára, að sögn vefsíðu BBC .

Tæki er mjótt og aðeins um 14 millimetrar að lengd, það getur fylgst með allt að fimm þáttum samtímis. Notuð er nál til að koma því fyrir rétt undir húðinni á maga, fótleggjum eða handleggjum. Talið er að það gæti dugað í þrjá mánuði áður en það væri endurnýjað eða alveg fjarlægt.

Ljóst er að tækið gæti m.a. komið að góðu gagni á sjúkrahúsum fyrir mikið veikt fólk á gjörgæsludeild sem stöðugt þarf á blóðmælingum að halda.

kjon@mbl.is