Mr. Silla Hún verður gestur í kvöld.
Mr. Silla Hún verður gestur í kvöld. — Morgunblaðið/Ómar
Félagarnir Ottó Tynes og Stebbi Magg spila nokkur vel valin Smiths-lög með sínum hætti á KEX Hosteli í kvöld.

Félagarnir Ottó Tynes og Stebbi Magg spila nokkur vel valin Smiths-lög með sínum hætti á KEX Hosteli í kvöld. Einfaldleikinn og einlægnin verða í fyrirrúmi en þó verður endað með fullu bandi og rokkað hressilega upp með bassaleikaranum Ragnari Helga og trommaranum Magga Magg.

Gestasöngvarar verða nokkrir og stórmerkilegir og má t.d. nefna söngkonuna Sillu úr Mr. Silla og múm og stórleikarann Halldór Gylfason.

Það var mikið fjör og góð stemmning þegar þessir tónleikar voru haldnir í apríl í fyrra og alveg ástæða til að ætla að nú verði þetta enn betra.

Tónleikarnir hefjast tímanlega kl. 21 og kostar 1500 kr. inn. Kex Hostel

er á Skúlagötu 28.