Fagurgali. N-NS
Norður | |
♠1087 | |
♥ÁKD93 | |
♦1075 | |
♣G2 |
Vestur | Austur |
♠64 | ♠9532 |
♥86 | ♥72 |
♦G86 | ♦42 |
♣1098764 | ♣ÁKD53 |
Suður | |
♠ÁKDG | |
♥G1054 | |
♦ÁKD93 | |
♣ – |
Misjafnlega gekk að melda alslemmu í þessu spili frá landsliðskeppni helgarinnar. Á tveimur borðum var spilað geim, fjögur pör sögðu hálfslemmu, en aðeins tvö komust alla leið í 7♥. Átta skot og sex framhjá.
Ragnar Hermannsson og Guðmundur Snorrason voru í hittna hópnum. Guðmundur passaði sem gjafari í norður og Ragnar opnaði á 2♣, sterkum. Svörin við alkröfunni grundvallast á yfirfærslum, þannig að Guðmundur sýndi strax hjartalit með 2♦. Nú kom austur inn á 3♣ og Ragnar tók undir hjartað með 4♣. Norður á enga augljósa sögn, en Guðmundur hélt lífi í slemmuleitinni með 4♦ (síðasta útkall). Þá var leiðin opin fyrir Ragnar að halda áfram og hann valdi að stökka í 5♥. Sögnin sú lofar öllu fögru til hliðar og biður makker að hækka í 6♥ með gott tromp. Guðmundur gerði gott betur – lyfti í 7♥.