Nelson Mandela
Nelson Mandela
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er enn á batavegi, samkvæmt suður-afrískum stjórnvöldum.
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er enn á batavegi, samkvæmt suður-afrískum stjórnvöldum. Mandela hefur nú dvalið um fimm daga á sjúkrahúsi, þar sem hann undirgengst aftöppun fleiðruvökva í kjölfar lungnasýkingar. Fólk um allan heim hefur beðið fyrir Mandela og á sunnudag þakkaði Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, stjórnvöldum erlendra ríkja fyrir velfarnaðaróskir til handa friðarleiðtoganum.