Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann Sigurðarson
Björn Bergmann Sigurðarson og félagar í Úlfunum lögðu Birmingham á útivelli í gær, 3:2, í ensku B-deildinni í fótbolta. Páskarnir voru Úlfunum góðir því á laugardaginn skoraði Björn Bergmann í 3:2-sigri á Middlesbrough.

Liðið náði með sigrunum að hífa sig upp úr fallsæti og upp í það 19. en er samt sem áður í mikilli fallhættu enda aðeins einu stigi frá fallsvæðinu.

Aron Einar Gunnarsson var einnig í byrjunarliði Cardiff sem vann Blackburn, 3:0, á heimavelli í gær. Cardiff er með ellefu stiga forystu á liðið í þriðja sæti og er á hraðleið í úrvalsdeildina. tomas@mbl.is