Þriggja ára stúlka lést seinnipartinn á sunnudag þegar fjórhjól sem hún var farþegi á valt. Slysið varð við bæinn Skjöldólfsstaði í Breiðdal, að því er lögreglan á Eskifirði greindi frá.

Þriggja ára stúlka lést seinnipartinn á sunnudag þegar fjórhjól sem hún var farþegi á valt. Slysið varð við bæinn Skjöldólfsstaði í Breiðdal, að því er lögreglan á Eskifirði greindi frá. Í tilkynningu frá lögreglu kom fram að ekki væri hægt að veita frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.

Bænastund var haldin í Heydalakirkju í gærkvöldi vegna slyssins.