Námskeið í ballett fitness hefst 8. apríl hjá Hreyfingu og hentar það bæði þeim sem dönsuðu á tánum í barnæsku og líka þeim sem aðeins létu sig dreyma um að geta gert það.
Námskeið í ballett fitness hefst 8. apríl hjá Hreyfingu og hentar það bæði þeim sem dönsuðu á tánum í barnæsku og líka þeim sem aðeins létu sig dreyma um að geta gert það. Á námskeiðinu er farið í gegnum grunntækni listgreinarinnar og er tíminn byggður upp með tækniæfingum og samsetningum. Unnið er í að bæta djúpvöðvastyrk, liðleika, jafnvægi, líkamsstöðu og samhæfingu og mikil áhersla er lögð á dans og gleði. Leiðbeinandi er Elva Rut Guðlaugsdóttir ballettkennari.