2. apríl 1725 Eldgos hófst í nágrenni Heklu og fylgdu því „skelfilegir jarðskjálftar,“ eins og sagði í Hítardalsannál. 2. apríl 1928 Jóhanna Magnúsdóttir fékk lyfsöluleyfi, fyrst íslenskra kvenna.

2. apríl 1725

Eldgos hófst í nágrenni Heklu og fylgdu því „skelfilegir jarðskjálftar,“ eins og sagði í Hítardalsannál.

2. apríl 1928

Jóhanna Magnúsdóttir fékk lyfsöluleyfi, fyrst íslenskra kvenna. Hún starfrækti Lyfjabúðina Iðunni í Reykjavík í tæp 33 ár.

2. apríl 1955

Í skólum landsins og víðar var þess minnst að 150 ár voru frá fæðingu danska rithöfundarins H.C. Andersen. Meðal annars var minningarhátíð í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík með fjölbreyttri skemmtidagskrá.

2. apríl 1970

Bandaríski sendiherrann afhenti Kristjáni Eldjárn forseta tunglgrjót að gjöf frá Richard Nixon forseta. Morgunblaðið sagði að þetta hefðu verið „fjórir smásteinar frá tunglinu, felldir inn í gegnsæjan plasthnapp sem er festur á viðarflöt ásamt íslenskum silkifána er var með í förinni þegar menn lentu á tunglinu í fyrsta sinn, 20. júlí 1969“.

2. apríl 1996

Rússneskur togari var tekinn við ólöglegar veiðar út af Reykjanesi, sá fyrsti síðan fiskveiðilögsagan var færð út í 200 mílur árið 1975.

Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.